föstudagur, ágúst 22, 2008

Tal

Þar sem ég er nú orðinn viðskiptavinur tals, þá geri ég ráð fyrir að allir sem ég þekki geri slíkt hið sama þannig að við getum alltaf hringt frítt okkar á milli, gegt sniðugt sko!

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Sama Númer ? sama röddin ?

Sævar Jökull Solheim sagði...

jájá, sami burri eins og hann leggur sig

Nafnlaus sagði...

Bíddu bíddu karlinn bara á lífi?? :) Ertu svo að reyna losna við alla vini þína með því að skipta um símafyrirtæki?? Ég þarf reyndar ekki að borga minn reikning þannig að ég skal kannski halda áfram að hringja í þig....
Nú fer ég að verða frekar súr að minn æskuvinur heimsæki mig ekki í fögru höllina mína á Héraðinu...
kv Heiða
p.s. fórstu í útflutningspartýið til Guðjóns?

Sævar Jökull Solheim sagði...

Neibb, þetta er bara gróði fyrir alla. Hinir vinir mínir borga ennþá það sama fyrir að hringja í mig, en þeir sem eru hjá tal þurfa ekkert að borga... brillíant.
Já, frekar aumt hjá manni, maður fór ekkert austur í sumar, aldrei þessu vant.
Jájá, fór að sjálfsögðu í partýið, það var snilld. Virkilega vel veitt hjá stráknum af mat, drykk og góðum félagsskap. Frábært alveg.