þriðjudagur, apríl 15, 2008

Ég get, vil og skal

Fékk skyndilega þessa miklu blogglöngun...

Er þó greinilega ekki í æfingu, veit ekkert hvað ég á að skrifa.

Nenni ekki að skrifa um hvað sé að frétta, hvað ég er að gera þessa dagana... nei, það er allt of glatað.
Nenni heldur ekki að skrifa um hvað Liverpool sé frábært lið, held að það séu hvort sem er allir farnir að skilja það.
Ekki er neitt "gigg" framundan... þannig að ekki get ég sett inn einhverja brjálaða auglýsingu um það, nenni heldur ekki að tala um það sem er búið að vera í gangi undanfarið.
Ökklinn minn er í smá verkfalli þannig að ekki get ég skrifað um afrek mín á knattspyrnuvellinum... engin smá afrek sem það hefðu annars verið.
Nenni heldur ekki að tala um frí og ferðalög sem framundan eru... geri það bara seinna.

held ég tali bara um veðrið

það er blessuð blíðan... vorið virðist bara loksins vera komið

veí

9 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Snilldarblogg.... þér tekst að skrifa 14-15 línur en ekki um neitt, alveg eins og blogg eiga að vera :)

Nafnlaus sagði...

Frábært blogg. Þú varst reyndar drullulélegur í síðasta leik á knattspyrnuvellinum. Skot þín voru slök, aldrei þessu vant. Ég vona að það hafi aðeins verið útaf þessu verkfalli ökklans.

Nafnlaus sagði...

Sammála Höskuldi - snilldarleg sóun á þínum og okkar tíma. Gæti varla verið betra :)

Alltaf gaman að kíkja hingað inn, sérstaklega þegar þú bloggar eitthvað nýtt og hressandi.

Nafnlaus sagði...

hehehe, Ólafur - Við commentuðum á NÁKVÆMLEGA sömu mínútunni :) skuldar mér pylsu og kók

Sævar Jökull Solheim sagði...

hey! takk fyrir kommentin :)
Á maður ekki alltaf bara að spila eftir aðstæðum Ólafur... við unnum leikinn þannig að maður þurfti ekkert að spila betur :p

Nafnlaus sagði...

Það er satt Burri, ekki ofreyna sig þegar sigur er vís :)
Ok, kúl Bibba... pylsu með öllu?

Nafnlaus sagði...

Sammála síðustu commentaræðum.
Þegar ég las um ökklann þinn þá var mér strax hugsað til þess hvað þú ert með svakalega fallega fótleggi Sævar minn. Langt síðan ég hef séð þá! Er ekki að lofa því að ég kíki á leik hjá ykkur í sumar, en það væri gaman að koma og sjá þessa fótleggi þína.
Nú eins og vanarlega þegar ég hæli fótleggjunum hans Sævars þá verður Ólafur Arnar smá abbó. Svo Ólafur minn þú með fallegar hendur...

Takk!

Nafnlaus sagði...

Authorize to pass the organism with two backs casinos? affirm this untested [url=http://www.realcazinoz.com]casino[/url] proceed and accentuate online casino games like slots, blackjack, roulette, baccarat and more at www.realcazinoz.com .
you can also brook our blooming [url=http://freecasinogames2010.webs.com]casino[/url] all about at http://freecasinogames2010.webs.com and ribbons floor with accepted folding shin-plasters !
another exhibitionist [url=http://www.ttittancasino.com]casino spiele[/url] in the dissertation of is www.ttittancasino.com , because german gamblers, dive upon since unconstrained online casino bonus.

Nafnlaus sagði...

Making money on the internet is easy in the underground world of [URL=http://www.www.blackhatmoneymaker.com]blackhat make money[/URL], You are far from alone if you haven’t heard of it before. Blackhat marketing uses alternative or little-understood methods to generate an income online.