föstudagur, ágúst 25, 2006

Ég...

...var á frábæru ættarmóti í lok júlí
...var á mögnuðu Neistaflugi um versló
...er búinn að borða pizzu á megaviku
...byrja að vinna hjá Umferðarstofu í byrjun sept.
...er auper þessa dagana
...þori skal get og vil
...mætti ekki á neinn af menningarviðburðum menningarnætur, sá þó flugeldasýninguna í fjarska, fór í frábæra grillveislu og datt í það
...stóð mig betur á Gay pride og fór í bæinn til að sjá skrúðgönguna
...ætla að fara að fá mér ristaða beyglu með smurosti núna
...er kominn til baka frá því að fá mér ristaða beyglu með smurosti, drakk ávaxtasafa með
...er ekki búinn að setja inn nýjar myndir en það er allt í vinnslu
...er yaris
...setti inn nokkra linka hér til hliðar, er öruglega að gleyma einhverjum mikilvægum, skrifið það þá í komment
...ætla að vera duglegur að blogga
...skal ekki leggja nafn Drottins, Guðs míns við hégóma
...hef átt frábæran ágúst mánuð
...mun búa á Njálsgötunni ásamt Stefáni Jóhanni í vetur
...tapaði fótboltaleik í vikunni
...er ekki að fara á hjálpartækjasýningu í kvöld
...rangur maður á röngum tíma í vitlausu húsi
...finn fyrir ákveðnum létti að vera loksins búinn að blogga smá
...á leiðinni til Liverpool á leik í september
...er að tala um sjálfan mig

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Djöfull líst mér vel á þetta hjá þér, bara ein færsla hjá sillunni til að koma þér á stað;) og hvað er málið með að mæta ekki á hjálpartækjakynninguna og versla í dótakassann...hummm;) alveg spurning hjá mér um að reyna að redda þessum bitum sem ég er með í kvöld á kynningunni...híhí versla versla versla:)

kv silly ho

Sævar Jökull Solheim sagði...

hehe... læt bara duga að mæta á sýningu hjá ykkur með öllu draslinu sem þið kaupið! ;)

Bibba Rokk sagði...

synd og skömm að ég kemst ekki á sýninguna, Silla tékkaðu á því hvað "you know what" kostar :)
Velkominn aftur í bloggheiminn Burri, alltaf gaman að kíjka á síðuna

Nafnlaus sagði...

Burri, þú ert ekki Yaris!!

Nafnlaus sagði...

Þetta er rétt hjá ólafi, þú ert vespa

Nafnlaus sagði...

asdf