þriðjudagur, október 28, 2008

68,8%

Það er þá komið í ljós að það var hirt af manni rúm 30% af því sem maður hefur nurlað saman í gegnum árin... fúlt.

Villi og Sigurjón eiga báðir afmæli í dag, það er ekkert fúlt, bara mjög flott. Til hamingju með það.

Mono mun sigra Flúðir á Útlaganum um helgina, það er sko alls ekkert fúlt enda er það víst síðasta skrefið fyrir heimsfrægð... ef ekki þá stendur bjór og pottur í bústað alltaf fyrir sínu.

Lífið í vesturbænum gengur prýðilega og styttist nú í það að maður sé búinn að ganga frá mesta ruslinu svo hægt verði að bjóða í heimsókn.

...þannig að þetta er að langmestu leiti bara flottur dagur, enda ekki við öðru að búast á þriðjudegi

7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Skemmtilegt fyrsta kommentið hérna!!

Helvíti gott að geta horft svona á björtu hliðarnar þegar búið er að taka svona mikinn pening af manni :)

Kv Höskuldur

Sævar Jökull Solheim sagði...

Já... hún pescaenourense er virkilega flinkur kommentari

Nafnlaus sagði...

Rosalega er nú gott hvað þú ert duglegur að pósta gleðisveitinni Partí. Gangi ykkur vel á Flúðum.

Sævar Jökull Solheim sagði...

hún verður póstuð reglulega á þriðjudögum um ókomna framtíð... enda góð vísa aldrei of of kveðin.

Takk fyrir það

Sævar Jökull Solheim sagði...

'oft'

Nafnlaus sagði...

Af hverju lagðiru ekki frekar inn á örugga bók í staðinn fyrir að vera í þessum áhættufjárfestingum?

Sævar Jökull Solheim sagði...

bara