þriðjudagur, september 19, 2006

Liverpool

Það styttist í Liverpool ferðina, en ég fer út á föstudagsmorgni. En ég er semsagt að fara ásamt Sölva, Sævari, Ranný, Þorbergi, Herði, Reyni og Sævari (nei er ekki að ruglast, við verðum 3 sævararnir) á Liverpool - Tottenham á Anfield.
Þar sem ég verð á námskeiðum næstu tvo daga og ekki nettengdur heima þá verður líklega lítið um blogg fyrr en eftir næstu helgi.

Vil þó nefna að fólk má endilega taka frá laugardagskvöldið 30. sept. en þá verður mögulega nett innflutningspartý á Njálsgötunni, þetta er alls ekki 100% ákveðið og ég er reyndar ekki búinn að ræða það við Stebbann en hann er ekki vanur að setja sig upp á móti svona... Svo verð ég líka með heimsókn frá Sviss þessa helgina, en Vincent, strákurinn sem ég bjó með í Svartfjallalandi ætlar að kíkja... hann er mjög skemmtilegur og á lausu stelpur ;)
Svo er líka mikilvægt að fólk taki frá föstudaginn 6. okt og mæti á fjáröflunarkvöld Ármanns/Þróttar... kostar nánast ekkert inn og bjórinn næstum ókeypis og fullt af frábæru fólki :) nánri upplýsingar hjá BibbuBeib

Annars bara heyrumst við eftir helgi :D
Áfram Liverpool!

over and out

ps.
Lesið þessa frásögn stelpu sem missti systur sína í bilslysi!!

6 ummæli:

Bibba Rokk sagði...

Þú ert snillingur :) tek 30.sept frá. Þurfum eitthvað að athuga þetta 24 dæmi líka :)

og 6.sept - 500krónur inn og bjórinn á 250 kall - frábær skemmtun og gert ráð fyrir yfir 100 manns :) hlakka til að sjá ykkur sem flest

Nafnlaus sagði...

Æi...akkur ekki partý á föstud.kvöldinu 29. sept....þá verð ég í bænum :Þ Góða skemmtun á Anfield!

Bibba Rokk sagði...

Á ekkert að blogga meira?

Nafnlaus sagði...

Nei nú gengur þetta ekki,
ég er búinn að blogga tvisvar síðan þú bloggaðir!!! Þó þú sért bara að svara í símann á skiptiborðinu hjá umferðarstofu þá geturðu nú allveg látið vita af þér!!