miðvikudagur, mars 28, 2007

Tónleikar




Jamm... það eru semsagt tónleikar með Hlyni Ben á Hvebbanum annað kvöld (fimmtudag) kl. 21:30 og er ég þess heiðurs aðnjótandi að vera í bandinu hans.
Tókum þessar fínu hljómsveitarmyndir og allt maður... usss... maður var reyndar að verða smá lasinn þegar myndirnar voru teknar, með skærbleikt nef, hafði því töluverðar áhyggjur af útkomunni, en neinei, hlynsinn reddaði því nú með einu handtaki, barabimmbarabúmm og myndirnar orðnar svarthvítar, ég er ekki frá því að hann hafi blurrað mig soldið líka...

but anyways, vona að sem flestir sjái sér fært að kíkja á Hverfisbarinn á morgun, fá sér einn öl (já eða fimm fötur eins og sumir) og hlusta á fagra tóna frá fögr... ...frá hljómsveitinni

Kíkið líka endilega á mæspeis síðuna hans Hlyns ...ég er alltaf að fatta það meira og meira hvað maður er glataður að vera ekki með svona mæspeis

2 ummæli:

Bibba Rokk sagði...

Heyrðu, ég er búin að draga fram sníps-síða pilsið mitt, netasokkabuxurnar, fuck-me stígvélin og leður-korselettu þannig að ég er ready fyrir "I´m a slut" klæðnaðinn í kvöld.
Kem þó kannski örlítið of seint þar sem ég er á körfuboltaæfingu til 22 :)

Sævar Jökull Solheim sagði...

usss... þá verðuru að vera snögg maður!! ætlum nefnilega ekki að drepa fólk með eitthvað voðalega löngum tónleikum.

...En líst mjöög vel á outfittið! :)