föstudagur, mars 23, 2007

Tott.is

Góðvinur minn og stórsöngvari hljómsveitarinnar Outloud er ekki vanur að sitja auðum höndum og hefur staðið í ýmsu undanfarin ár til að skapa sér og litlu fjölskyldu sinni smá auka tekjur og má þar m.a. nefna klifur hans undanfarið upp metorðastigann í söngheiminum.
Þetta brask Villa hefur gengið mis vel en nú er hann kominn af stað með business hugmynd sem á að slá í gegn, fyrst á íslandi en síðar út í hinum stóra heimi.
Hugmyndin gengur út á það að gefa út svokallaða "Tott miða", en ef keyptur er slíkur miði hjá Villa þá er hægt að framvísa hann hjá hvaða starfsmanni Tott.is ehf sem er og fá þá viðeigandi þjónustu á hvaða tíma sólarhrings sem er.
Villi segist vera mjög bjartsýnn á framtíð fyrirtækisins enda hafi þetta alveg vantað á markaðinn og sé hann nú þegar búinn að ráða 3 starfsmenn sem munu starfa í þessu ásamt honum sjálfum en stanslausar æfingar og þjálfun hafa átt sér stað undanfarið.
Til að byrja með mun miðinn vera á sérstöku kynningarverði eða 2400 krónur en miðana má panta á villi.blogdrive.com en Villi er einnig búinn að tryggja sér lénið tott.is og er síðan í vinnslu.


Hér má sjá Villa ásamt einum starfsmanna sinna hjá tott.is en umfangsmikil þjálfun hefur átt sér stað innan fyrirtækisins undanfarin misseri.

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Vill koma því á framfæri að ekki eru einungis um karlmenn að ræða sem starfa hjá tott.is heldur vorum við rétt í þessu að ráða unga stúlku á fertugsaldri sem verður með okkur í þess, einnig verður um mismunandi verð í gangi eftir því hvort að það er keyptur stakur miði eða kort með 10 miðum en kortið kostar þá 20.000 eða um 4000 kr í afslátt. Ekki slæmt það


Kveða
Vilhelm Harðarson
Tott.is

Nafnlaus sagði...

Samkvæmt Isnic hefur enginn skráð lénið tott.is. Ferð þú bara með fleipur á þessari síðu Sævar?

Nafnlaus sagði...

Neinei Einar hann Sævi fer ekki með fleipur, þar sem ég sótti um lénið núna í morgun þá verður það ekki tryggt fyrr en á mánudag því að á íslandi vinnur (sumt) fólk ekki um helgar. En vinnslan á síðunni er í fullum gangi og það hrannast upp umsóknir um starf hjá fyrirtækinu. áhugasömum er benta á að senda starfsumsókn á starfsumsokn@tott.is


Vilhelm Harðarson Corp.
Tott.is ehf.

Sævar Jökull Solheim sagði...

burri.blogspot.com fer aldrei með fleipur!

Nafnlaus sagði...

Rosalega fæ ég mikinn hausverk af því að sjá þessa mynd. Ég er ekki frá því að ég hafi fengið mér rauðvín þetta kvöld!

Bibba Rokk sagði...

Heyrðu - hvert á ég að mæta á fimmtudaginn? Þú mættir á körfuboltaleik svo það minnsta sem ég get gert er að mæta á tónleika :)