föstudagur, apríl 22, 2005

Sagan endurtekur sig?

Þá er duglegi ég búinn að gera myndaalbúm á netinu þar sem myndavélinn er nýji félaginn í djammhópnum. Þar mun semsagt allur sorinn birtast og að sjálfsögðu allt óritskoðað :)
Það eru semsagt komin 2 myndaalbúm, annað er frá síðustu helgi sem var bara nokkuð týpísk helgi, engin stórkostleg afrek þar, en hitt er frá því í fyrradag þegar ég ásamt nokkrum stelpum (jebb... alltaf einn af stelpunum) skelltum okkur í þáttinn hjá Hemma Gunn. Ég reyndi eftir fremsta megni að sitja sem lengst til hliðar þannig að ég sést vonandi ekki í sjónvarpinu, en þættirnir sem voru teknir upp í gær voru númer 39 og 40 (búið að taka upp 40 þætti á 4 vikum! góð keyrsla það). Eftir þáttinn var svo kíkt á djammið... Svo koma að sjálfsögðu fleiri myndir eftir helgi þar sem það stefnir allt í frábæra helgi! :)

Smá söguleg hugleiðing:

1978
# Páfinn dó
# Wales vann stóru slemmuna í ruðningi
# Liverpool tapaði úrslitaleiknum í deildarbikarnum fyrir liði sem síðan varð Englandsmeistari (Nottingham forest)
# Liverpool varð Evrópumeistari í knattspyrnu

2005
# Páfinn dó
# Wales vann stóru slemmuna í ruðningi
# Liverpool tapaði úrslitaleiknum í deildarbikarnum fyrir liði sem verður Englandsmeistari í vor (Chelsea)
# Liverpool verður Evrópumeistari í knattspyrnu???

og þar að auki:

1981
# Karl Bretaprins kvæntist
# Liverpool varð Evrópumeistari

2005
# Karl Bretaprins kvæntist
# Liverool verður Evrópumeistari???

Já... maður spyr sig! :)

7 ummæli:

Bibba Rokk sagði...

Geggjaðar myndir Burri :) hlakka til ljótudansakeppnarinnar (er þetta skrifað svona?) í kvöld :)

Og guð hvað ég vona að spádómar þínir rætis.

GO LIVERPOOL

Anna sagði...
Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.
Nafnlaus sagði...

Nokkuð góðar pælingar, ert þú sjálfur svona mikill pælari eða? ;)

Og á móti til Bibbu...GO ARSENAL!

Sævar Jökull Solheim sagði...

neinei... fékk þetta sent í tölvupósti :)

Fanny sagði...

Já... Maður spyr sig. Er þetta planað eða er þetta tilviljun. Er saga okkar skrifuð í skýin, ráðum við einhverju varðandi framtíðina eða er þetta allt saman slemmbilukkað fram úr ermunum og við fáum að njóta vafans hvað verður eður ei.

Fanny sagði...

Hey.. afhverju er ekki mynd af mér?

Sævar Jökull Solheim sagði...

vó! miklar og djúpar pælingar þarna Fanný!
Þú verður að skrá þig inn eins og þegar þú ert að uppfæra síðuna þína og setja mynd í my profile... þá kemur myndin af þér þegar þú kommentar :)