mánudagur, apríl 18, 2005

Sææævar byggir...

Veii... bara fjögurra daga vinnuvika framundan... sem skiptir reyndar bara ekki rassgat máli fyrir mig, jú fæ reyndar frí í vinnu á fimmtudagskvöldið.
Annars er ég ferlega duglegur þessa dagana að hjálpa Einari að endurinnrétta eldhúsið hjá sér... er bara orðinn nokkuð sjóaður í að skrúfa saman eldhúsinnréttingar, þótt ég segi sjálfur frá.
Síðasta helgi var mjög týpísk að öllu leiti nema því að ég var með nýju Sony DSC-P200 Cyber-shot® myndavélina mína meðferðis. Villi Harðar var svo góður að kaupa hana fyrir mig í ameríkuferð sinni. Hann gaf mér reyndar upp eitthvað vitlaust reikningsnúmer til að leggja inná... þýðir það ekki að ég slepp við að borga honum? hans mistök! :)
En þetta þýðir að ég verð að henda upp einhverri myndasíðu til að deila með ykkur myndunum af ykkur... geri það líklega í vikunni.
Svo var ég nú að velta fyrir mér hvort maður ætti ekki að henda upp einhverri getraun, svona í anda tilvitnanagetraunarinnar góðu... þarf að pæla aðeins betur í því (allar hugmyndir vel þegnar). Sem minnir mig á það, ég átti alltaf eftir að tilkynna opinberlega hver var tilvitnunarmeistari, það kemur að því. Þess má nú líka geta að ég er nýkrýndur lördagsquiz meistari á síðu Ólafs Arnars... þrefalt húrra fyrir mér... Húrra húrra hóraaaa....

Jæja... nóg af tilgangsleysisbloggi í bili. Farinn að byggja eldhúsinnréttingu.

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

jeijeijei Burrinn kominn aftur! velkominn feiti!!

Nafnlaus sagði...

Þú veist að það er djamm á miðvikudaginn er það ekki..... þarf ég eitthvað að vera að segja þér frá því???? Alla vega ætla ég og Matta að fá okkur í aðra tánna.... Einnig geturu spurt hann Barða hvort hann eigi frí 13.maí þegar ég og Matta höldum útgáfupartý-ið?

-Bibba-

Sævar Jökull Solheim sagði...

Takk fyrir það Olla sæta.

ú-ú-ú... djamm á miðvikudag.. me like!
útgáfupartý? hvurn djöfullinn ætlið þið að gefa út?

Nafnlaus sagði...

sko önnur táin...right! Ég ætla að fá mér eitt freyðivíns glas í tilefni 22 ára afmælis míns og málið er dautt! Sævar samgleðst okkur að sjálfsögðu ehagi???
Við finnum alltaf ástæðu til að djamma... göngum meira að segja það langt að við erum farnar að gefa ýmsa hluti út en að þessu sinni sér Bibban um útgáfuna en ég verð skemmtanastjóri..víví:)
Matta patta

Nafnlaus sagði...

Uhuuuuuuuuuuuu ég er að keppa á fimmtudaginn...ömurlegt að vera svona íþróttafrík....grenj grenj

Nafnlaus sagði...

Hvað erum við að gefa út!!!!!!!!!!! Nú BA-ritgerðina mína maður......skil 13.maí..... Skil = útgáfa = útgáfupartý :) Við finnum alltaf ástæðu til að djamma og halda góð partý :)

- Bibban-