miðvikudagur, ágúst 24, 2005

brandari og allt...

Ég held ég hafi aldrei sett brandara inn á bloggið... ekki svo ég muni allavega. Nú verður breyting þar á:

Kona nokkur var að versla í Bónus-verslun í hverfinu.
Hún var búin að setja 3 lítra af léttmjólk í körfuna ásamt 1 eggjabakka með 10 eggjum, 1/2 lítra af appelsínusafa, 1 höfuð kínakál, kaffipakka og bréfi af beikoni.
Ölvaður maður fyrir aftan hana í röðinni fylgdist með þegar hún raðaði þessum hlutum á færibandið við kassann. Þegar kassadaman tók til að lesa strikamerkin inn sagði drukkni maðurinn hæglátlega:
"Þú ert örugglega einhleyp"!

Konunni gramdist þessi ummæli drukkna mannsins en jafnframt fannst henni athugasemdin skondin þar sem það var vissulega rétt, hún var einhleyp. Hún virti fyrir sér þessa sex hluti á bandinu og furðaði sig á hvernig í ósköpunum hann gæti komið með svona fullyrðingu af þessum ósköp venjulegu innkaupum. Forvitnin varð henni um megn svo hún sagði:
"Þetta er vissulega hárrétt hjá þér. Hvernig í ósköpunum geturðu séð það??" . . .


...Og drukkni maðurinn svaraði:

"Af því að þú ert svo ljót!"

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hehe, þú hefur einhvern tímann farið fullur útí búð :)

Sævar Jökull Solheim sagði...

Já þakka þér kærlega fyrir það hr. corey1darnell. Ég mun eflaust kíkja á síðuna þína og hver veit nema ég kommenti eitthvað skemmtilegt.
Bið að heilsa mömmu þinni.

Nafnlaus sagði...

Þessi var viðbjóðslega góður!
Mig dreymdi þig um daginn Sævar! Er farinn að fá skrítnar draumfarir eins og Olla í Norge!!
Kv halldóra k

Nafnlaus sagði...

úps ásláttarvilla! Á að vera eitt N í farin ! Afþví að ég er stelpa !kv Hkh

Sævar Jökull Solheim sagði...

Já... Olla átti það til að dreyma mig, skemmtilegt að það skuli vera farið að smita út frá sér... :) að lokum verð ég orðinn the ultimate draumaprins!
Var ég ekki annars bara hress í draumnum?

Nafnlaus sagði...

þú varst jú mjög hress ;) say no more !
halldóra