Svo er þó ekki því þarna gerðist merkilegur atburður, þarna misti ég nefnilega sveindóminn... nei, það var reyndar uppí rúmi, undir sæng, ljósin slökkt og tók fljótt af en það er nú önnur og styttri saga.
Gaman væri að vita hvort þú, lesandi góður, getur gískað á hvað þarna gerðist (bannað að skrolla niður og svindla). Gískaðu og kommentaðu hvort það hafi verið rétt hjá þér eða ekki... þeir sem geta rétt fá verðlaun.
Setjum tímann í gang... núna!
takk
tikk
takk
tikk
takk
og... tíminn er liðinn.
Ég býst við að glöggir söguspekúlantar hafi getið sér rétt til og fá þeir útrunnin smokk í verðlaun...
En á þessu horni mun Gavrilo Princip hafa staðið þegar hann drap Franz Ferdinand og konu hans Sophie von Chotkovato sunnudaginn 28. júní 1914, atburðurinn sem markar upphaf fyrri heimsstyrjaldarinnar.
Vegna klúðurs tók ökumaður þeirra hægribeygju inn götuna á mynd 1 en eftir að hershöfðingi sem var staddur með þeim í bílnum öskraði á hann að um rangan veg væri að ræða steig ökumaðurinn á bremsuna og byrjaði að bakka til baka. Hann bakkaði þó ekki nógu hratt og voru hjónin því auðveld bráð Princip sem beið átekta við hornið.
Í dag er skjöldur á húsveggnum (mynd 3) sem minnir á þennan atburð.
Já... það er gaman að skoða sögufrægar slóðir
5 ummæli:
Spurning um að þú skellir þér bara í master í sögu með áherslu á Serbíu/Montenegro svæðið??? ;) Getur byrjað með Ólafi á næsta ári!!!
Það virðist vera einhver þurrkur á ákveðnum sviðum í gangi hjá þér... ;)
hehe..já, þetta hljómar frekar biturt :) en það var nú ekki ætlunin
Verður eiginlega að skoða myndir af þessu samt og sjá hattinn sem franz var með.. stórkostlegur alveg hreint..
oskar
http://www.spartacus.schoolnet.co.uk/FWWarchdukeMe.jpg
Mér finnst þetta fínn hattur... og hattur kellingarinnar ekki síðri! myndi vilja eiga svoleiðis, með svona neti og allt!
Ég læri meira á því að lesa bloggið þitt heldur en í öllum sögutímunum í grunnskóla og framhaldsskóla til samans.
Skrifa ummæli