miðvikudagur, janúar 04, 2006

Toppaðu myndatextann, 3. umferð

Þá er komið að 3. umferð "toppaðu myndatextann".
Villi sigraði í síðustu umferð og er því dómari í þessari.
Hann sendi inn þessa mynd en myndatextann vantaði þannig að ég bætti honum inn í... toppið þetta nú helvítin ykkar!! :)

"Bylting á fólksbifreiðamarkaðnum: Hundur sem sleikir rass farþeganna er staðalbúnaður í nýja fjölskyldubílnum frá Volvo"

17 ummæli:

Bibba Rokk sagði...

Helvítið hún Roseanne Bar að setjast á mig og troða mig fastan undir sætið.....ég mun ná mér niðr'á henni einhvern daginn.....

Nafnlaus sagði...

Ekki óhreinka leðrið:

,,Iss, það sér þetta enginn.. ég má til með að taka síðdegisdrullið."

Nafnlaus sagði...

Verðlaunahundurinn Klepri fundinn!
Margverðlaunaði veiðihundurinn Klepri fannst í gær eftir margra vikna leit. Svo virðist sem hundurinn hafi í einhverju óðagoti troðið sér upp í rassgatið á eiganda sínum, Sigvalda Péturssyni sem vegur rúm 300 kíló. Seinni partinn í gær gerðist það svo að Sigvaldi rak heldur kraftmikið við í leigubifreið, á leið til spámiðils sem hann batt vonir við að gæti sagt sér hvar Klepri væri niðurkominn. Í öllum atgangnum virðist Klepri hafa fylgt loftstraumnum og Haraldur Daníelsson leigubílstjóri fann hundgreyið illa á sig komið er hann gekk frá bílnum við lok vinnu sinnar í gær.

Nafnlaus sagði...

Tekið úr fræðslumyndbandinu "101 leið til að hressa upp á kynlífið með hvutta".

Gefið út af Tantrafélagi hundaeiganda.

Nafnlaus sagði...

Grænfriðungar hafa enn og aftur reynt að búa til myndband sem á að sýna fram á illgjarna meðferð á dýrum, í þetta sinn gegn Þjóðverjum. Í skottinu er risastór séffer að koma sínu fram. Myndin er frá sæðingarstöð í Berlín.
-Jón Hafliði

Nafnlaus sagði...

DV greindi frá því í morgun að áttræð kona hefði fengið slag vegna þess að hundur, sem komið hafði verið fyrir undir sæti í leigubíl, hefði sleikt á sér görnina! "Ég vissi ekki hvaðan á mig stóð veðrið, hélt ég hefði drullað á mig því allt í einu var ég öll blaut á rassgatinu en svo þegar ég fór að athuga málið sá ég hvað stóð fyrir þessu" Ekki er hægt að greina frá nafni konunar að svo stöddu.

Kv Terten

Nafnlaus sagði...

The dangers of canine autofellatio.

(og nei, ég man ekki hversvegna ég kann þetta orð)

Nafnlaus sagði...

Sá undarlegi atburður átti sér stað síðdegis í gær að aftursæti bíls gleypti hund, talsmenn fyrirtækisins hafa neytað að tjá sig um málið, en heyrst hefur að aftursæti sömu tegundar bíls hafi einnig glefsað í barn...Bíllinn hefur nú þegar verið kallaður til baka af gæðaeftirlitinu

Nafnlaus sagði...

Kona keyrði bíl:
Í gær keyrði kona bíl, það endaði að sjálfsögðu með því að henni tókst að bakka á og olli með því töluverðu tjóni. Engin meiðsl urðu á mönnum en hundur konunnar varð fyrir töluverðu tilfinningalegu tjóni (sjá mynd)

Nafnlaus sagði...

Tilkynning frá Volvo:
Ekki er óhætt að hafa gæludýr laus í sætum bifræða fyrirtækisins sem hafa að geyma airbag öryggispúða. Hefur ný rannsókn leitt í ljós að fjöldi gæludýra hefur horfið á óútskýranlegan hátt eftir að slíkar bifreiðar hafa lent í óhöppum.
Kv. Óskar

Nafnlaus sagði...

Dómarinn er fyrir löngu búinn að gera upp hug sinn ; Vilja menn fá úrslit?

Sævar Jökull Solheim sagði...

held að það sé alveg óhætt að fara að tilkynna úrslitin já...

Nafnlaus sagði...

Jæja Hér koma úrslitin;

Í þriðja sæti lenti Óskar
Í Öðru sæti voru Orri og Ólafur Arnar saman.

En verðlauna sætið í þetta skiptið hlýtur sjálfur Burrinn en það komst enginn með tærnar þar sem hann var með hælana. Eina commentið sem fékk mig til að hlæja upphátt eins og Orri sagði.

Nafnlaus sagði...

Djöfulsins rassasleikja ertu Villi... ert viss um að þetta sért ekki bara þú þarna í sætinu?

Sævar Jökull Solheim sagði...

hehehe... bitur! :)

Nafnlaus sagði...

Þetta er nýja línan frá wolksvagen. þeir sölumenn sem vinna fyrir helku og selja wolksvagen eru orðnir svo þreyttir að sleikja rassgöt á viðskipta vinum þannig að þeir gera þetta að staðalbúnaði í þessum hræjum sem þeir eru að ljúa uppá fólk.

Nafnlaus sagði...

þessi sem er að ibba gogg gleymdi að segja nafnið sitt "Bitur group"
Það bara var enginn með eins fyndið comment og sævar, það er bara staðreynd! Tár Tár og gráttu í pilsið !